Sex tilboð frá fjórum aðilum í byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík

Í gær voru opnuð tilboð í nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík. Alls bárust sex tilboð frá fjórum aðilum og er mánaðarlegt leiguverð á fermetra í tilboðunum á bilinu 5.645 kr. til 11.880 kr. Áætlað verð samkvæmt kostnaðaráætlun var 6.200 kr.

Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings segir að eitt af markmiðum kjörtímabilsins hafi verið að losa sveitarfélögin undan gríðarlegum fjárhagsklafa. „Það tókst í upphafi þess. Ef framgangur þessa verkefnis hefði verið eins og til var stofnað í upphafi værum við í dag búin að skuldsetja sveitarfélagið um tæpan milljarð. Þetta er gríðarlega góð lending og mikilvægt eins og efnahagsástand er í dag. Annað sem skiptir okkur miklu máli er að við náðum því fram að tengigangurinn kemur nú inn á núverandi tengigang milli Hvamms og Sjúkrahússins og rýrir þannig ekki framtíðarmöguleika húsnæðis Hvamms eins og annnars hefði orðið,” segir Hjálmar. „Við vonum að framgangur náist nú í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis.“