Sveitarstjóri fer yfir stærstu málefni á vettvangi Norðurþings

Í skoðanagrein sem birtist á Húsavík.com í dag fer Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, yfir helstu verkefni og málefni sem voru til umfjöllunar á vettvangi sveitarfélagsins í janúar. Þar kemur fram að mánuðurinn hafi einkennst af óvenjulegri veðurblíðu, áframhaldandi framkvæmdum, öflugu velferðar- og skólastarfi og fjölbreyttum áskorunum í atvinnu- og samgöngumálum.

Greinin kemur meðal annars inn á framkvæmdir við Borgarhólsskóla, fyrirhugaða sundlaug í Lundi, viðhald mannvirkja á Húsavík og stöðu atvinnumála á Bakka. Þá er einnig vikið að slökkviliðsverkefnum, dómsmáli Gentle Giants, samgönguáætlun ríkisins, málefnum hafnarinnar, orkukostum og mikilvægum ákvörðunum sveitarstjórnar.

Hægt er að lesa grein Katrínar hér:
> Janúar í Norðurþingi, stiklað á stóru