Þoka komin heim eftir 17 daga

Mikil gleði ríkti á heimili Hörpu Hrannar Björnsdóttur í kvöld þegar týnda kisan Þoka skilaði sér loks heim, eftir heila 17 daga fjarveru. Húsavík.com fjallaði um leitina að Þoku á dögunum og vöktu fréttirnar og aðstoð unglingadeildar Björgunarsveitarinnar Garðars mikla athygli. Nú hefur sagan fengið farsælan endi.

„Ég var akkúrat ný búin að vera þar sem við erum með fóðurstöð í Litlagerði, þegar Guðný dýraeftirlitsmaður Norðurþings hringir og segir mér að koma á Lögreglustöðina. Þau voru þrjú á vakt og þar beið Þoka mín bara fyrir utan stöðina. Ég er viss um að hún hefur verið einhversstaðar föst því hún er orðin horuð. Hún var mjög svöng og hún byrjaði strax að rífa í sig og er komin heim,“ sagði Harpa Hrönn í samtali við Húsavík.com í kvöld.

Þoka hafði greinilega fundið leiðina sjálf á öruggan stað og valið lögreglustöðina til að tryggja að hún kæmist heil heim.

Harpa greindi frá gleðitíðindunum á Facebook fyrr í kvöld:

„Kraftaverk gerast enn! Eftir langa 17 daga skilaði Þoka sér heim! Hún plantaði sér fyrir utan lögreglustöðina svo hún kæmist örugg heim ❤️❤️
Orð fá því ekki lýst hvað við erum glöð og þakklát að fá þessa yndislegu mús heim ❤️❤️
Takk allir sem hafa aðstoðað okkur ❤️
Við erum orðlaus.“

Harpa sendi okkur þessar fallegu myndir og myndbönd af Þoku heima í stofu í kvöld.

Þoka södd og sæl í stofunni heima í Grundargarði.