Tíundi hver farþegi til Akureyrar heimsækir einnig Austurland

Um tíundi hver farþegi sem nýtir sér beint millilandaflug til Akureyrar heimsækir einnig Austurland og er almenn ánægja meðal gesta með bæði svæðin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, „Beint frá Akureyri“, sem byggir á landamærakönnun meðal erlendra ferðamanna veturinn 2024–25. Austurglugginn greinir frá.

Fram kemur að framboð flugs hafi veruleg áhrif á ferðamynstur gesta og hvort þeir heimsæki fleiri landshluta. Samkvæmt skýrslunni dvöldu um 90% ferðamanna eingöngu á Norðurlandi en um 10% ferðuðust einnig til Austurlands, einkum farþegar frá Zürich og Amsterdam.

Gunnar Gunnarsson ritstjóri á Egilsstöðum er með ítarlega samantekt í nýjasta tölublaði Austurgluggans. Eins og Austurglugginn greinir frá hefðu um helmingur þeirra sem heimsóttu Austurland ekki komið þangað án beinu fluganna til Akureyrar. Þá kemur fram að 66% gesta sem ferðuðust austur lýstu upplifun sinni sem frábærri og nefndu margir norðurljósin sem hápunkt ferðarinnar.

Ljósmynd: Eysteinn Guðni Guðnason, birt með Creative Commons leyfi