Viðbragðsaðilar á Húsavík heimsækja í dag nemendur á Leikskólanum Grænuvöllum og í Borgarhólsskóla í tilefni 112 dagsins. Það var mikil eftirvænting hjá tveggja og þriggja ára nemendum á deildinni Fossi á Grænuvöllum meðan beðið var eftir að fara út að skoða öll bláu blikkandi ljósin nú í morgun.
„Neyðarlínan heldur upp á 112 daginn þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 1-1-2. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð,“ segir í upplýsingum frá Neyðarlínunni.

