Aldey leiðir nýtt vinstri framboð Velferðar

Fulltrúar V-listans, hins nýja vinstri framboðs Velferðar, funduðu á Húsavík í gærkvöld þar sem gengið var frá uppstillingu í efstu sæti framboðslistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor.

Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi frá árinu 2021, leiðir listann. Í samtali við Húsavík.com í gær sagði Aldey að framboðið væri skipað fólki úr Vinstri grænum, Sósíalistum og óflokksbundnum einstaklingum. Stefnt sé að því að kynna framboðslistann í heild sinni í næstu viku.

„V-listi Velferðar vill byggja upp sterkt velferðarsamfélag í Norðurþingi þar sem hagur fjölskyldunnar og heilnæmt umhverfi eru leiðarljós í ákvarðanatöku og forgangsröðun sveitarstjórnar. Við eigum að mæta þörfum allra aldurshópa og fjölbreyttra fjölskylduforma, því öll eigum við að geta fundið okkur stað í Norðurþingi,“ segir Aldey í samtali við vefinn.

Í öðru sæti er Salbjörg Matthíasdóttir verkefnastjóri og bóndi í Árdal, í þriðja sæti Halldór Jón Gíslason skólameistari og í fjórða sæti Guðmundur Halldórsson málarameistari.

Í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 hlaut listi VG og óháðra 17% atkvæða og tvo fulltrúa kjörna í sveitarstjórn.