Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu eftir að íþróttafélagið Völsungur tilkynnti að sala á Völsungsmerktum fatnaði myndi hætta í Skóbúð Húsavíkur og færi fram í gegnum netverslun í samstarfi við Boltamanninn.
Nú hefur Húsavík.com borist aðsend grein frá Birgittu Bjarney Svavarsdóttur, verslunareiganda í Garðarshólma, þar sem hún hvetur aðalstjórn félagsins til að endurskoða ákvörðunina og leggur áherslu á mikilvægi þess að versla í heimabyggð.
Birgitta bendir á að Völsungur sé ekki „manneskja með kennitölu“ heldur standi raunverulegt fólk að baki félaginu og taki ákvarðanir í nafni þess. Hún segir ákvörðunina í besta falli hugsunarleysi.

