Það má greina að kosningaskjálftinn er byrjaður. Styttist í kosningar og framboðin hvert á fætur öðru að klára sín uppstillingarmál. Nokkur skeyti hafa borist inn á ritstjórn Húsavík.com þar sem kvartað er undan umfjöllunarleysi um ákveðna flokka og gnægð umfjöllunar um önnur framboð.
Til dæmis barst ritstjórn bréf frá Miðflokksmanni sem fannst ekki merkileg heimsókn Viðreisnar í Framhaldsskólann á Húsavík, sem sagt var frá hér á vefnum í vikunni. Sagði hann að þau hefðu sjálf verið í skólanum á svipuðum tíma og gjörsamlega slegið í gegn. Bárust okkur nokkrar myndir af þingmanninum og samfélagsmiðlastjörnunni Snorra Mássyni sem greinilega átti upp á pallborðið hjá mörgum nemendum.
Þá hefur á hinn bóginn verið kvartað af öðrum yfir því að Miðflokkurinn fái áberandi mesta athygli í fréttaumfjöllun á Húsavík.com. Kosningastjóri flokksins, sem er mjög reyndur í þeim efnum, hefur skipulagt kynningu framboðs þeirra þannig að aðeins er tilkynnt um einn frambjóðanda í einu. Þannig hefur kosningastjórinn náð að mjólka möguleika til umfjöllunar á miðlinum, en fréttatilkynningar berast inn á ritstjórn frá M-listanum flesta daga um nýjan frambjóðanda og ein bíður birtingar í dag.
Ritstjórinn með Samfylkingu á heilanum
Þá hefur ritstjóra borist það til eyrna að einhverjum þyki sem hann sé með Samfylkinguna á heilanum og að fullmikið sé skrifað á vefinn um uppstillingarmál þar á bæ. Án þess að halla á aðra verður þó að segjast að mest spennan er einmitt þar, þar sem minnst þrír sækjast eftir oddvitasætinu og jafnvel ásókn í heiðurssætið.
Óvenju pólitískar bókanir
Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu eftir bókun í stjórn Hafnasjóðs í vikunni, sem þótti mun pólitískari en gengur og gerist í stjórnsýslu. Greint var frá bókuninni hér á vefnum og tóku nokkrir landsmiðlar fréttina upp.
Raunar er það svo að bókanir í fundargerðum sveitarfélagsins eru oftast frekar rýrar. Sem dæmi má nefna að í stóru máli sem varðaði tugi milljóna vegna myglu í starfsmannahúsnæði Leikskólans Grænuvalla var um daginn bókað að nefnd bæjarins hefði valið kost 1, án þess að kostirnir væru sérstaklega útlistaðir fyrir þau sem lesa fundargerðir Norðurþings.
Ritstjóra finnst að sveitarstjórn og nefndir sveitarfélagsins mættu taka sig á í upplýsingagjöf og bjóða meiri upplýsingar frekar en minni. Kannski batnar það ef kosningastjóri Miðflokksins nær kjöri.

