Gul veðurviðvörun er í gildi á Húsavík og á Norðurlandi eystra. Hvassviðri er í bænum, 15 til 23 metrar á sekúndu og gengur nú yfir með snjókomu og skafrenningi. Aðstæður eru erfiðar víða í bænum og hafa bílar fest sig bæði á götum og í bílastæðum. Akstursskilyrði eru slæm og líkur á ófærð á vegum. Vegna veðurs verður ekki hirt úr endurvinnslutunnum í dag. Þá er sorpstöðin í Víðimóum lokuð sökum veðurs.
Ökumenn eru hvattir til að sýna aðgát þar sem skyggni er misjafnt, og fylgjast vel með færð og veðurspám sé lagt í langferðir.


