Vefmiðillinn bb.is greinir frá því að Golfklúbbur Patreksfjarðar hyggist halda sérstakt golfmót í tilefni af almyrkva á sólu sem gengur yfir Ísland miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Mótið ber heitið Sólmyrkvamótið 2026 og fer fram á sama tíma og myrkvinn verður sýnilegur.
Þetta verður í fyrsta sinn síðan árið 1954 sem almyrkvi sést frá Íslandi og er Patreksfjörður meðal þeirra staða þar sem upplifunin verður hvað lengst. Hápunktur dagsins verður klukkan 17:47, þegar tunglið hylur sólina algjörlega.
Gert verður stutt hlé á leik á meðan almyrkvinn stendur yfir svo kylfingar og áhorfendur geti notið augnabliksins. Skipuleggjendur segja markmiðið vera að bjóða upp á upplifun sem kylfingar muni muna lengi, enda sé slíkur atburður aðeins á dagskrá náttúrunnar á um það bil hundrað ára fresti.
> Sjá einnig: „Almyrkvar eru stærsta sýning náttúrunnar“

