Vestfirskt fyrirtæki snýr halla ríkissjóðs í afgang með 40 milljarða greiðslu

Fyrirtækið Kerecis frá Ísafirði mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands vegna skattlagningar á kaupum móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum dótturfyrirtækisins. Um er að ræða eina stærstu einstöku skattgreiðslu sem íslenskt fyrirtæki hefur innt af hendi. Frá þessu er greint í nýbirtum árshlutareikningi félagsins. Samkvæmt fjárlögum var gert ráð fyrir Gert er ráð fyrir að halli á heildarafkomu ríkissjóðs myndi á árinu nema rúmlega 28 milljörðum króna, eða 0,5 prósent af landsframleiðslu ársins.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis og nú framkvæmdastjóri hjá Coloplast, segir greiðsluna endurspegla þá miklu verðmætasköpun sem átt hafi sér stað á Vestfjörðum á undanförnum árum.

„Atvinnulífið á Vestfjörðum hefur vaxið hratt síðustu ár og skatttekjur hins opinbera hafa aukist mikið af þeirri ástæðu. Hér sjáum við því í raun ekki tilfallandi einskiptisávinning heldur endurspeglar þetta styrk og samkeppnishæfni atvinnulífsins á svæðinu,“ segir Guðmundur Fertram í samtali við Morgunblaðið.

Kerecis hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir þróun á lækningavörum unnum úr roði þorsks. Sala félagsins til danska heilbrigðisfyrirtækisins Coloplast á síðasta ári var ein stærsta fyrirtækjasala í íslenskri atvinnusögu.

Ljósmynd frá Ísafirði: Sturla St. af Wikimedia Commons