„Liður í að bæta aðgengi og hraða afhendingu,“ segir póstmeistari

Pósturinn mun frá og með morgundeginum breyta afhendingu sendinga til einstaklinga á Húsavík. Sendingar sem hingað til hafa verið afhentar á pósthúsinu verða framvegis afhentar í Póstboxi utan við pósthúsið að Garðarsbraut 70.

„Þetta er liður í að bæta aðgengi og hraða afhendingu sendinga til viðskiptavina okkar. Póstboxin gera fólki kleift að nálgast sendingar þegar því hentar best, án þess að þurfa að bíða eftir opnunartíma pósthússins,“ segir Rúnar Traustason, póstmeistari á Húsavík.

Um er að ræða sendingar sem falla innan stærðar- og þyngdarmarka fyrir Póstbox og eru merktar með nafni og símanúmeri eða netfangi viðtakanda og ekki hefur verið óskað eftir persónulegri afhendingu. Sé sending ekki sótt í Póstbox innan þriggja daga verður hún færð á pósthús, en viðtakendur geta á heimasíðu Póstsins óskað eftir að hún verði send aftur í Póstbox eða pantað heimkeyrslu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Póstinum. Heimkeyrsla og fyrirtækjaþjónusta verða óbreytt frá því sem áður var.

Nánar er fjallað um breytingarnar á vef Póstsins.

Samsett ljósmynd: Guðný María Waage / Örlygur Hnefill