„Mikil skerðing á þjónustu við félaga í Völsungi,“ segir Birna í Skóbúðinni

Óánægja kraumar meðal Völsunga á Húsavík eftir að Boltamaðurinn, innflytjandi Puma á Íslandi, ákvað að Völsungsmerktar vörur fáist framvegis eingöngu beint frá fyrirtækinu en ekki í gegnum Skóbúð Húsavíkur. Skóbúðin hefur í áratugi séð um sölu á búningum og fatnaði merktum Völsungur og verið fastur punktur í þjónustu við iðkendur og stuðningsfólk félagsins. Nú er þeirri hefð lokið.

„Okkur var tilkynnt að heildsalan vildi ekki hafa endursöluaðila og í raun höfum við ekkert um þetta að segja, en við erum búin að vera að þjónusta Völsunga í áratugi,“ segir Birna Dögg Magnúsdóttir hjá Skóbúð Húsavíkur. Hún segir breytinguna fela í sér verulega skerðingu á þjónustu við félaga. „Við hefðum viljað halda áfram og mér finnst þetta mikil skerðing á þjónustu við félaga í Völsungi.“

Framkvæmdastjóri Völsungs, Jónas Halldór Friðriksson, segir málið verða rætt á stjórnarfundi á fimmtudag en vill að öðru leyti ekki tjá sig að svo stöddu, en nokkrir félagar í Völsungi hafa haft samband við Húsavík.com og lýst mikilli óánægju með stöðuna.

Húsavík.com hefur óskað eftir upplýsingum frá stjórn félagsins um hversu langur núverandi samningur við Puma og Boltmanninn sé, og hvort svigrúm sé til að halda dreifingu að einhverju leyti í heimabyggð. Svara er að vænta að loknum stjórnarfundi síðar í vikunni.

Mikil umræða hefur skapast um málið á samfélagsmiðlum í dag og segir Brynjar Baldursson framkvæmdastjóri Heimamanna þar að boltinn sé hjá samfélaginu hér á Húsavík:  „Þetta er mjög einfalt gott fólk, við setjum þá kröfu að fötin verði einungis keypt í gegnum Skóbúðina líkt og gert hefur í áratugi Þá stoppum við þessa vitleysu. Bara ekki panta hjá þeim beint. Boltinn er hjá okkur núna. Þetta skiptir okkur máli,“ segir Binni.

Samsett mynd af vef Völsungs og vef Skóbúðarinnar