Helmingur erlendra íbúa telur rödd sína ekki heyrast í nærsamfélaginu

„Mér finnst áhugavert að þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að skoðanir þeirra væru teknar til greina í ákvörðunum sem varða nærsamfélagið sagði helmingur þátttakenda svo ekki vera,“ segir Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir hjá Þekkingarneti Þingeyinga í samtali við Húsavík.com um niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu og reynslu erlendra íbúa á Norðurlandi eystra.

Rannsóknin var hluti af stærra verkefni Þekkingarnets Þingeyinga sem styrkt er af Þróunarsjóði innflytjendamála, en þessi hluti var unninn sérstaklega fyrir Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra. Hún byggir á 30 viðtölum við erlenda íbúa á svæðinu og gefur innsýn í upplifun þeirra af búsetu, þjónustu, tungumáli, félagslegri þátttöku og möguleikum til áhrifa í nærsamfélaginu.

Að sögn Ingibjargar Benediktsdóttur hjá Þekkingarneti Þingeyinga telja aðeins um 20% þátttakenda að innflytjendur eigi sér skýran málsvara í sveitarstjórnum.

„Þrátt fyrir þetta sýna niðurstöðurnar að áhugi á þátttöku er til staðar. Þegar spurt var um þátttöku í næstu sveitarstjórnarkosningum sögðust tveir af hverjum þremur ætla að kjósa. Þá sagðist einnig töluverður hluti þátttakenda geta hugsað sér að bjóða sig fram til sveitarstjórnar ef tækifæri byðist,“ segir Ingibjörg.

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig erlendir íbúar upplifa stöðu sína í samfélaginu og hvaða þættir styðja við eða hindra þátttöku þeirra í því. Niðurstöðurnar sýna að flestir viðmælendur meta búsetu sína á svæðinu almennt jákvætt, en einnig koma fram áskoranir sem tengjast meðal annars tungumáli, upplýsingaflæði og aðgengi að þjónustu.

Tungumálið reyndist lykilþáttur í upplifun fólks af þátttöku í samfélaginu. Þrátt fyrir að stór hluti þátttakenda hafi sótt íslenskunámskeið lýstu margir því að þeir skildu íslensku betur en þeir gætu tjáð sig á tungumálinu, sem gæti haft áhrif á sjálfstraust og virkni í daglegu lífi.

Að mati Lilju benda niðurstöðurnar til þess að þrátt fyrir að margir upplifi takmörkuð áhrif sé vilji til þátttöku í lýðræðislegu starfi til staðar.

„Í ljósi þess að nú styttist í sveitarstjórnarkosningar gefa niðurstöðurnar mikilvægar vísbendingar um tækifæri til að efla samtal, upplýsingagjöf og þátttöku erlendra íbúa í nærsamfélaginu,“ segir Ingibjörg að lokum.