Hvalreki í Kjálkafirði

Hval rak á land í austanverðum Kjálkafirði í gær en um er að ræða kvenkyns hnúfubak. Jóhann Pétur Ágústsson gekk fram á hvalrekann, sem hann sagði í samtali við Húsavík.com að væri enginn happafengur. Hvalinn rak í landi tengdamóður hans og taldi Jóhann líklegt hafi dýrið verið nýdautt þegar það rak á land.

Jóhann gaf Húsavík.com góðfúslegt leyfi til að birta mynd sem hann tók af vettvangi í gærkvöldi.

Eva Björk Káradóttir, forstöðumaður Hvalasafnsins á Húsavík segir í samtali við vefinn að safnið sé þegar með hnúfubaksgrind og því ólíklegt að það muni sækjast eftr að varðveita grindina.