Íþróttafélagið Þingeyingur og sveitarfélagið Norðurþing hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning sem miðar að því að efla íþróttastarf og hreyfingu í sveitarfélaginu. Samningurinn felur meðal annars í sér að Þingeyingur tekur yfir umsjón og ræstingar í íþróttahúsunum í Lundi og á Kópaskeri, með það að markmiði að bæta nýtingu þeirra og styrkja daglegt utanumhald starfseminnar.
Áfram verður unnið að samþættingu skóla-, frístunda- og íþróttastarfs með svokölluðu hreyfiverkefni, þar sem skipulagðar æfingar fara fram bæði innan skólatíma og í lengdri viðveru barna. Einnig er stefnt að aukinni þátttöku yngri barna, auk þess sem skipulögð hreyfing fyrir eldri borgara verður í boði.
Þá mun félagið halda utan um sumarfrístund í Öxarfirði og sinna áfram þróun og skipulagi íþróttastarfs fyrir alla aldurshópa. Gert er ráð fyrir að samningurinn geri félaginu kleift að ráða starfsmann í fullt starf til að sinna verkefnunum.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, segir samninginn mikilvægt skref í að efla íþrótta- og hreyfistarf í sveitarfélaginu. „Íþróttastarf og hreyfing skiptir miklu máli fyrir heilsu og vellíðan íbúa á öllum aldri,“ segir Katrín.
Brynjar Þór Vigfússon, formaður Þingeyings, segir samninginn stóran áfanga fyrir félagið og muni styrkja bæði faglegt starf og stöðu þess í samfélaginu.

