„Hér er engum hent út, en við erum með það lúxusvandamál að margir hafa lýst vilja til að leiða listann. Og það er meira að segja bitist um heiðurssætið, á sama tíma og öðrum flokkum gengur illa að manna efstu sæti hjá sér,“ sagði heimildamaður úr innsta hring baklands Samfylkingarinnar í Norðurþingi í samtali við blaðamann Húsavík.com í kjölfar fréttar sem birtist á vefnum fyrir helgi.
Sjá: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“
Vinna uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar stendur enn yfir og ekki liggur fyllilega fyrir hvenær listi flokksins í Norðurþingi verður kynntur.
Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 fékk Samfylkingin 201 atkvæði, eða rétt tæp 13% atkvæða, og einn fulltrúa kjörinn. Flokkinn vantaði þá 62 atkvæði til að ná inn tveimur fulltrúum.
Ef litið er lengra aftur í tímann má sjá töluverðar sveiflur í fylgi flokksins milli kosninga í Norðurþingi:
2018: 14,39% / 1 fulltrúi
2014: 18,55% / 2 fulltrúar
2010: 14,34% / 1 fulltrúi
2006: 21,08% / 2 fulltrúar
Sögulega var vinstri vængurinn á Húsavík mjög sterkur. Til að mynda var Húsavíkurlistinn, sem stofnað var til af Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi, með hreinan meirihluta í bæjarstjórn Húsavíkur eftir kosningar 1998 og 2002, en sé rýnt í fylgi þeirra flokka í kosningunum árið 1994 sést að stærri hluti þess fylgis tilheyrði líklega gamla Alþýðubandalaginu sem þá fékk tæp 29 prósent atkvæða meðan jafnaðarmenn fengu rúm 14 prósent.
Á landsvísu mælist Samfylkingin nú með 30 prósent fylgi samkvæmt síðustu könnun Maskínu og leiðir ríkisstjórnarsamstarf. Samkvæmt þeim sem Húsavík.com hefur rætt við síðustu daga úr flokknum er markmið Samfylkingarinnar skýrt nú, að ná tveimur fulltrúum í komandi sveitarstjórnarkosningum.

