Undir merkjum tónlistarhátíðarinnar Músík í Mývatnssveit 2026 verður í ár flutt gamanóperan Der Schauspieldirektor eftir Wolfgang Amadeus Mozart, sem á íslensku nefnist Viðburðastjórinn. Hátíðin hefur verið haldin í Mývatnssveit í dymbilviku samfellt frá árinu 1998.
Sýningarnar verða tvær í félagsheimilinu Skjólbrekku, annars vegar á skírdag 2. apríl og hins vegar á föstudaginn langa 3. apríl. Báðar sýningar hefjast klukkan 20.
Óperan er skemmtilegur og léttur farsi þar sem meðal annars kemur við sögu þegar tvær óperusöngkonur, umboðsmaður úr poppheiminum og jarðarfararsönghópur úr sveitinni bóka allt húsið í Skjólbrekku á sama tíma.
Með helstu hlutverk fara Fjóla Kristín Nikulásdóttir sópran, Lilja Guðmundsdóttir sópran og Egill Árni Pálsson tenór.
Nánar verður fjallað um tónlistarhátíðina og rætt við skipuleggjendur hennar síðar í vikunni.

