Norðursigling og Húsavík Adventures gera 100 milljóna kröfu á Norðurþing

Fyrir fundi byggðarráðs Norðurþings í morgun lágu tvær kröfur um endurgreiðslu farþegagjalda sem greidd hafa verið í Hafnasjóð Norðurþings. Kröfurnar koma frá Norðursiglingu og Húsavík Adventures og nema samanlagt rúmum 100 milljónum króna. Rúmlega 90 milljón króna krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings var kynnt á fundi ráðsins í síðasta mánuði. Liggja því fyrir kröfur að upphæð rúmlega 190 milljóna.

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, segir í samtali við Húsavík.com að málið sé nú til skoðunar hjá sveitarfélaginu. „Við erum nýbúin að móttaka þessar kröfur og erum að vinna úr þeim með lögmönnum sveitarfélagsins. Þetta verður rætt í stjórn Hafnasjóðs á næsta fundi. Okkar vilji er að útkljá þessi mál svo hægt sé að halda áfram mikilvægri starfsemi á höfnunum, og þá þarf vilji sveitarfélagsins og fyrirtækjanna að ganga saman,“ segir Katrín.

Norðursigling gerir kröfu um endurgreiðslu að upphæð 90.634.454 kr. og Húsavík Adventures kröfu upp á 9.698.462 kr.

> Sjá einnig: Krafa Gentle Giants á hafnasjóð Norðurþings nemur 91 milljón króna