Öll framboð ættu að liggja fyrir í vikunni

Samfylkingin hefur boðað til félagsfundar á laugardag þar sem tillaga stjórnar um uppröðun á lista Samfylkingarinnar í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi verður borin upp til samþykktar.

Framboðsmálin í sveitarfélaginu eru óðum að skýrast. Sjálfstæðisflokkurinn og Óskalistinn hafa þegar kynnt framboðslista sína í heild. Þá hefur M-listi Samfélagsins kynnt efstu fimm frambjóðendur sína og Framsóknarflokkurinn efstu fjóra. Fréttir eru einnig væntanlegar síðar í vikunni af nýju vinstra framboði. Öll framboð sem hafa verið í umræðu ættu því að liggja fyrir nú í vikunni.

Á sama tíma vinnur ritstjórn Húsavík.com að sérstökum kosningavef sem opnaður verður síðar í vikunni. Þar verður hægt að skoða alla framboðslista og fylgjast með fréttum úr kosningabaráttunni í Norðurþingi.