Frestun fjárfestinga til ársins 2027

Á sveitarstjórnarfundi 25. mars studdum við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi tillögu oddvita Framsóknarflokksins um að fresta fjárfestingum að upphæð 190 mkr. til ársins 2027. Ástæður þess að við samþykktum tillöguna eru nokkrar. Fjárhagur sveitarfélagsins þarf að standast jafnvæisreglu, sem þýðir að saman lagt yfir þriggja ára tímabil má rekstrarniðurstaða …

Öll framboð ættu að liggja fyrir í vikunni

Samfylkingin hefur boðað til félagsfundar á laugardag þar sem tillaga stjórnar um uppröðun á lista Samfylkingarinnar í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi verður borin upp til samþykktar. Framboðsmálin í sveitarfélaginu eru óðum að skýrast. Sjálfstæðisflokkurinn og Óskalistinn hafa þegar kynnt framboðslista sína í heild. Þá hefur M-listi Samfélagsins …

Helena Eydís Ingólfsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var ákveðið rétt í þessu á félagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Norðurþingi sem nú stendur yfir í sal Framsýnar á Húsavík. Helena hefur tvisvar áður verið í framvarðasveit flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hún skipaði 2. sæti listans árið …

Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar álúrvinnslustöðvar til sveitarstjórnar

Byggðaráð Norðurþings samþykkti í dag að vísa til sveitarstjórnar viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á úrvinnslustöð áls á Bakka við Húsavík. Það er fyrirtækið Transatlantic Aluminium í samstarfi við Almex USA sem stefna að uppbyggingunni og eru þau meðal þeirra fyrirtækja sem tilgreind voru í tillögum starfshóps Forsætisráðuneytisins vegna stöðvunar PCC …

Þórhallur gefur kost á sér í 1. sæti á Akureyri og vill prófkjör hjá Sjálfstæðisflokki

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í efsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Jafnframt hyggst hann kæra til miðstjórnar flokksins þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við val á framboðslista og krefst þess að haldið verði prófkjör. Akureyri.net greindi …

Helena Eydís vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir hefur gefið kost á sér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún segir í samtali við Húsavík.com eingöngu sækjast eftir oddvitasætinu og að hún muni ekki taka sæti neðar á lista. „Í mínum huga munu kosningarnar snúast fyrst og fremst um fjármál sveitarfélagsins og …

Sjö fulltrúar í sveitarstjórn vilja vindorkuverkefni á Hólaheiði fært úr biðflokki

Rætt var um vindorkuverkefni á Hólaheiði, svokallaðs Hnotasteins, á fundi sveitarstjórnar Noðurþings sem fór fram á Kópaskeri í gær. Verkefnið er sem stendur í biðflokki í rammaáætlun stjórnvalda. Virkjunarkosturinn er staðsettur á jörðum Katastaða, Presthóla og Efri-Hóla. Gert er ráð fyrir allt að 34 vindmyllum með heildarafl allt að …

Sveitarstjórnarkosningar: Sjálfstæðisflokkur velur í uppstillingarnefnd

Sjálfstæðisfólk í Norðurþingi fundaði í gær um val á lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Að sögn Helenu Eydísar Ingólfsdóttur sveitarstjórnarfulltrúa var á fundinum ákveðið að fara í uppstillingu og valið í uppstillingarnefnd. Í uppstillingarnefnd sitja þau Olga Gísladóttir, Guðrún Þóra Hallgrímssdóttir, Stefán Jón Sigurgeirsson, Sigurgeir Höskuldsson, Anna Rósa Magnúsdótti og …