Opið bréf til Aðalstjórnar Völsung

Kæra aðalstjórn,

Ég skrifa þetta bréf vegna þeirra ákvörðunar að bjóða eingöngu vörur félagsins til sölu í netverslun en ekki í gegnum Skóbúð Húsavíkur eins og hefur verið gert undanfarin ár og ekki síst vegna status sem var settur á Facebook síðu Völsungs. Völsungur er ekki manneskja með kennitölu en það eru mannanna  verk í nafni Völsungs sem eiga sér stað á hverjum degi. Það er væntanlega aðalsjórn sem tekur ákvörun um þetta mál. Þetta er í besta falli hugsunarleysi en mjög alvarlegt hugsunarleysi.

Úr Facebook status:

Ákvörðun um fyrirkomulag sölunnar var tekin með hliðsjón af hagræðingu og aðgengi hjá Boltamanninum.”

Sala á Völsungsfatnaði mun því fara fram að mestu leyti í gegnum netverslun”

Ég berst fyrir því á hverjum degi að fólk versli í heimabyggð. Það er ekki bara slagorð – það er lífsafkoma, samfélagsleg ábyrgð og framtíðarsýn fyrir bæinn okkar. Þegar við veljum að beina viðskiptum frá staðnum, jafnvel þó það sé þægilegt eða hagkvæmt til skamms tíma, þá erum við um leið að veikja þann grunn sem samfélagið stendur á.

Verður hægt að fá afslátt með Völsungskortinu?

Verður hægt greiða með Húsavíkurgjafabréfinu?

Völsungur er ekki bara íþróttafélag – félagið er hluti af sjálfsmynd Húsavíkur. Það byggir á sjálfboðavinnu, stuðningi foreldra, fyrirtækja og heimamanna sem leggja sitt af mörkum ár eftir ár. Þess vegna skiptir máli að félagið sýni í verki að það styðji við sitt eigið samfélag þegar það er hægt.

Þetta snýst ekki bara um þægindi heldur um prinsipp – að við stöndum saman og höldum verðmætunum í heimabyggð.

Ég hvet aðalstjórn til að endurskoða þessa ákvörðun. Þannig getum við sameinað hagkvæmni og samfélagslega ábyrgð.

Ef við ætlum að hvetja fólk til að styðja Völsung, þá verðum við líka að sýna að Völsungur styðji Húsavík.

Með von um opið og uppbyggilegt samtal,

Virðingarfyllst,
Birgitta Bjarney Svavarsdóttir

 

 

About Birgitta Bjarney Svavarsdóttir

View all posts by Birgitta Bjarney Svavarsdóttir →