Rætt við formann Framsýnar og forseta sveitarstjórnar í kvöldfréttum RÚV

Rætt var við Aðalstein Árna Baldursson formann Framsýnar og Hjálmar Boga Hafliðason forseta sveitarstjórnar Norðurþings í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld. Tilefnið var staðan á Húsavík eftir að starfsemi kísilvers PCC á Bakka var stöðvuð og áhrif þess á atvinnulíf og byggð á svæðinu.

Í fréttinni kom fram að atvinnuleysi í Norðurþingi hafi aukist um 85% á milli ára og að 159 hafi verið skráðir atvinnulausir í janúar. Aðalsteinn Árni segir stöðuna þó alvarlegri en tölurnar sýni, þar sem margir hafi flutt burt, ekki síst erlent vinnuafl sem hafi verið mikilvægt fyrir atvinnulífið á svæðinu.

Hjálmar Bogi segir að afleiðingar lokunar PCC séu nú að koma skýrar í ljós og áætlar að um fimmtíu til sextíu manns hafi þegar flutt frá Húsavík vegna stöðunnar. Þá benti hann á að sveitarfélagið verði af um 50 milljónum króna í tekjur á hverjum mánuði á meðan óvissa ríkir um framtíð verksmiðjunnar.

Aðalsteinn Árni segir jákvætt að sveitarfélagið hafi undirritað viljayfirlýsingar við fyrirtæki sem sýna áhuga á uppbyggingu iðnaðar á Bakka, en telur að nú þurfi að stíga næsta skref og láta verkefni verða að veruleika. „Ég verð að segja alveg eins og er að hvort sem það eru þingmenn eða ráðherrar þá finnst mér þeir sýna þessu afskaplega lítinn áhuga,“ sagði hann í viðtalinu.

Hægt er að horfa á kvöldfréttatíma RÚV hér.

Samsett mynd: Kristófer Óli Birkisson tökumaður RÚV (úr kvöldfréttum RÚV í gær)