Í dag verður frumsýning á Rocky Horror í leikstjórn Eyvindar Karlssonar hjá Leikfélagi Húasvíkur. Um er að ræða eitt þekktasta og litríkasta tónlistarverk leikhússögunnar og er þessi uppsetning LH bæði ögrandi og gríðarlega kraftmikil. Blaðamaður Húsavík.com var viðstaddur generalprufu í vikunni og verður leikhúsrýni birt hér á vefnum á morgun þar sem sýningin verður tekin nánar til umfjöllunar.
Leikhópurinn samanstendur af bæði reyndum leikurum og nýjum andlitum og um er að ræða verulega metnaðarfulla uppsetningu.

