Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins í dag. Hún hlaut 95 atkvæði af 101 greiddu. Hlynur Már Ragnheiðarson bauð sig einnig fram til embættisins.
Rósa Björk var kjörin á Alþingi fyrir Vinstri græn árið 2016. Hún sagði sig úr þingflokki flokksins þann 17. september 2020 vegna óánægju með stefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Í desember sama ár gekk hún til liðs við Samfylkinguna.
Í alþingiskosningunum árið 2021 náði hún ekki kjöri fyrir Samfylkinguna en gegndi varaþingmennsku fyrir flokkinn á tímabilinu 2021 til 2023. Rósa Björk sneri aftur til liðs við Vinstri græn árið 2024.
Talsverð endurnýjun verður í forystu flokksins, en Svandís Svavarsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður. Hún flutti sína síðustu ræðu sem formaður flokksins í gær. Þá gaf Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður einnig ekki kost á sér áfram.
Rósa Björk á þrjú börn og er í sambúð með Kristjáni Guy Burgess, sem starfaði sem aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á árunum 2009 til 2013.

