Það verður óvenjuleg og skemmtileg viðureign á Tekk-vellinum í dag þegar Völsungur mætir Fylki í riðlakeppni Lengjubikarsins. Þar mætast nefnilega tvö systrapör sem leika sitt hvorum megin við miðjuna.
Fyrir Völsung spila þær Guðný Helga Geirsdóttir, fædd 2010, og Erla Þyri Brynjarsdóttir, fædd 2008. Í leiknum í dag mæta þær eldri systrum sínum í liði Fylkis, þeim Guðrúnu Þóru Geirsdóttur, fæddri 2004, og Hildi Önnu Brynjarsdóttur, fæddri 2003.
Húsvíkingurinn Hildur Anna hefur farið mikinn með Fylki og er markahæsti leikmaður riðilsins eins og staðan er núna.
Mæður stelpnanna eru mættar suður til að fylgjast með leiknum, en ekki hefur fengist uppgefið hvort þær muni hvetja hærra úr stúkunni.
Lið Völsungs mætir svo Fjölni í heimaleik í GPG Vellinum á Húsavík um næstu helgi.

