Tæpar 700 milljónir í undirbúning Fjarðarheiðarganga

Austurfrétt fjallar í dag um kostnað vegna rannsókna, hönnunar og annars undirbúnings Fjarðarheiðarganga, en útlagður kostnaður er kominn í tæpar 700 milljónir króna samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Samkvæmt nýjum tölum er bókfærður kostnaður á árunum 2014–2024 um 664 milljónir króna og bættust við 30,9 milljónir í fyrra, alls 695 milljónir. Fjarðarheiðargöng voru samþykkt í samgönguáætlun árið 2020 sem næstu jarðgöng á Íslandi, en samkvæmt tillögum núverandi innviðaráðherra eru þau ekki lengur meðal þeirra ganga sem njóta forgangs. Nánar er fjallað um málið á vef Austurfréttar.

Tölvumynd: Vegagerðin