„Þetta var markmiðið og við viljum meira“ segir Sigrún Marta

„Ég fór til HK síðasta haust og veturinn er búinn að vera mjög skemmtilegur. Þó að það hafi verið gott að breyta til þá get ég alveg viðurkennt að það var erfitt að koma heim og keppa á móti bestu vinkonum mínum í Völsungi,“ segir Sigrún Marta Jónsdóttir sem um helgina tryggði sér deildarmeistaratitil í blaki með HK eftir 3:1 endurkomusigur á KA. HK endar á toppi deildarinnar með 52 stig og mætir Aftureldingu í úrslitakeppninni. Völsungsstúlkur, sem verma þriðja sæti deildarinnar, munu hins vegar mæta KA.

„Þetta var markmiðið og við viljum meira,“ segir Sigrún Marta sem er ánægð með gengi liðs síns í vetur. Stefnan er sett erlendis næsta vetur og er Sigrún Marta langt komin í samningaviðræður við erlent lið og má vænta frétta af því á næstu vikum. Sigrún Marta var kjörin Íþróttamaður HSÞ árið 2024 fyrir afrek sín í blakíþróttinni og sú vegferðir virðist bara vera rétt að byrja.

Spurð um vinkonur sínar í Völsungi segir hún: „Ég held að Völsungsstelpur eigi góða möguleika og muni gera KA erfitt fyrir.“

Sigrún Marta og liðsfélagar hennar í HK eftir sigur helgarinnar. Mynd vaf vef HK