Blaklið Völsungs áttu góðan dag í GPG höllinni á Húsavík í dag þegar bæði karla- og kvennalið félagsins unnu leiki dagsins.
Karlalið Völsungs mætti Vestra í hörkuleik sem endaði með 3–2 sigri heimamanna. Völsungar byrjuðu leikinn vel og unnu fyrstu hrinu nokkuð örugglega. Gestirnir frá Vestra svöruðu þó með því að vinna næstu tvær hrinur. Völsungar gáfust hins vegar ekki upp, náðu sér á strik á ný og unnu síðustu tvær hrinurnar og þar með leikinn. Með sigrinum bættu þeir tveimur stigum í safnið.
Kvennalið Völsungs átti hins vegar öruggari dag á móti liði Þróttar Reykjavík/BFH. Völsungskonur unnu leikinn 3–0 og tóku öll þrjú stigin sem í boði voru.
Þetta eru þó aðeins fyrstu leikir helgarinnar því sömu lið mætast aftur á morgun í GPG höllinni. Karlaliðin hefja leik klukkan 13:00 og kvennaliðin fylgja í kjölfarið klukkan 15:30.


