Metfjöldi bíla um Vaðlaheiðargöng eftir Völsungsleik á Akureyri

Völsungsstúlkur mættu KA í þriðja og síðasta leik liðanna um sæti í lokaúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í blaki á fimmtudaginn síðasta. Mikil stemning hefur verið í kringum liðið í vetur og sést það einna best á tölfræði sem Húsavík.com hefur fengið frá Vaðlaheiðargöngum um umferð um göngin á fimmtudagskvöld að …

Unbroken deildin: Inga Björg valin efnilegust og Taylor og Tamara í draumaliðinu

Inga Björg Brynjúlfsdóttir, leikmaður blakdeildar Völsungs, hefur verið valin efnilegasti leikmaður í Unbroken deildar kvenna þessa leiktíðina. Blaksambands Íslands kynnti í liðinni viku draumalið deildarinnar og þá einstaklinga sem sköruðu framúr. Inga Björg hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Völsungsliðinu í vetur. „Hún hefur staðið sig frábærlega …

Tveir sigrar Völsunga gegn Þrótti í GPG höllinni í dag og leikið aftur á morgun

Tveir leikir fóru fram í Unbrokendeildum karla og kvenna í blaki í GPG höllinni á Húsavík í dag þegar Völsungar tóku á móti liðum Þróttar í Fjarðabyggð. Karlaliðin mættust klukkan 14.00 í hörkuleik sem endaði með 3–2 sigri Völsungs eftir æsispennandi leik. Kvennaliðin stigu svo á völlinn í kjölfarið …

Sögulegur sigur hjá karlaliði Völsungs og Eflingar í blaki

Karlalið Völsungs og Eflingar í blaki vann sögulegan sigur á liði KA-Splæsis í gærkvöldi í 8-liða úrslitum Kjörísbikarkeppni Blaksambands Íslands. Leikurinn fór fram í KA-heimilinu á Akureyri. Með sigrinum tryggði sameiginlegt lið Völsungs og Eflingar sér sæti í undanúrslitum Kjörísbikarsins í fyrsta skipti í sögu félagsins og jafnframt þátttökurétt …

Kristey Marín og Heiðdís Edda skrifa undir við Blakdeild Völsungs

Jákvæðar fréttir berast frá Blakdeild Völsungs í upphafi árs en þær Kristey Marín Hallsdóttir og Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir hafa skrifað undir samninga við félagið og munu klára yfirstandandi tímabil með liðinu. Forráðamenn deildarinnar segjast afar spenntir fyrir komu þeirra og telja að báðar muni styrkja liðið verulega í þeirri …