Útför Davíðs Oddssonar fór fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík í dag. Davíð markaði djúp spor í íslensku samfélagi og gegndi embætti forsætisráðherra lengur en nokkur annar Íslendingur í þrettán ár. Á löngum ferli sínum var hann einnig borgarstjóri Reykjavíkur í hartnær áratug, utanríkisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri Morgunblaðsins.
Fjölmenni var við útförina og meðal viðstaddra voru auk fjölskyldu Davíðs margir núverandi og fyrrverandi ráðamenn. Forseti Íslands, ráðherrar, biskup Íslands, fyrrverandi forsetar, forsætisráðherrar og forsetar Alþingis voru meðal þeirra sem boðið var til athafnarinnar.


