V-listi Velferðar samþykkir framboðslista í Norðurþingi

V-listi Velferðar hefur samþykkt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi. Á fundi framboðsins í gær var listinn lagður fram af uppstillingarnefnd og samþykktur. Eins og áður hafði komið fram í frétt á Húasvík.com er oddviti listans Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi.

Í tilkynningu frá framboðinu segir að Velferð sé listi fólks úr ólíkum stjórnmálahreyfingum sem og óflokksbundinna einstaklinga. Sameiginlegt með frambjóðendum sé sú hugsjón að Norðurþing verði gott og uppbyggjandi samfélag fyrir fólk og fyrirtæki. Framboðið segist leggja áherslu á að byggja upp sterkt velferðarsamfélag þar sem hagur fjölskyldunnar og heilnæmt umhverfi verði leiðarljós í ákvarðanatöku og forgangsröðun sveitarstjórnar. Þá verði lögð sérstök áhersla á að mæta þörfum allra aldurshópa og fjölbreyttra fjölskylduforma.

Í atvinnumálum segir V-listinn mikilvægt að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á víðum grunni í sveitarfélaginu. Þar sé meðal annars horft til þess að ný fyrirtæki rísi á iðnaðarsvæðinu á Bakka á komandi kjörtímabili, samhliða stuðningi við fjölbreytt atvinnulíf í þéttbýli og dreifbýli. Einnig vill framboðið skapa nýsköpunarhugmyndum skilyrði til að vaxa og dafna í sveitarfélaginu.

Þá segir í tilkynningunni að V-listinn hafi á yfirstandandi kjörtímabili haft þá sérstöðu að vara við hugmyndum erlendra fjárfesta um risa vindmyllugarða nærri náttúruperlum og byggð. Framboðið telur mikilvægt að stórar framkvæmdir, svo sem uppbygging vindorku, fari fram í nánu samráði við heimafólk, með sjálfbærni og samfélagsleg áhrif að leiðarljósi. Jafnframt vill listinn að uppbygging orkukosta taki mið af þegar röskuðum svæðum og að opinberir aðilar, svo sem Landsvirkjun, hafi leiðandi hlutverk í þeirri þróun.

Framboðslisti V-lista Velferðar
1 Aldey Unnar Traustadóttir – hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, Húsavík
2 Salbjörg Matthíasdóttir – verkefnastjóri og bóndi, Kelduhverfi
3 Halldór Jón Gíslason – skólameistari, Húsavík
4 Guðmundur H. Halldórsson – málarameistari, Húsavík
5 Guðrún Einarsdóttir – hjúkrunarfræðingur, Húsavík
6 Jónas Hrafn Klitgaard – húsasmiður, Húsavík
7 Bergljót Friðbjarnardóttir – félagsliði, Húsavík
8 Baldur Stefánsson – landbúnaðarverktaki, Öxarfirði
9 Ingibjörg Benediktsdóttir – verkefnastjóri, Húsavík
10 Árdís H. Jónsdóttir – bóndi, Öxarfirði
11 Christoph Wöll – kennari, Kópaskeri
12 Sunna Torfadóttir – leikskólaliði, Húsavík
13 Jónas Þór Viðarsson – húsasmiður, Kelduhverfi
14 Guðrún Sædís Harðardóttir – kennari, Reykjahverfi
15 Arnþór Þórsteinsson – listamaður, Húsavík
16 Bjartey Unnur Stefánsdóttir – nemi og landvörður, Öxarfirði
17 Sólveig Mikaelsdóttir – ritari félags- og skólaþjónustu, Húsavík
18 Trausti Aðalsteinsson – bæjarverkstjóri, Húsavík