Helga Björg Sigurðardóttirr, formaður Markþings (Ljósmynd: Hafþór Hreiðarsson)
Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna voru kynntar í dag, en verðlaunin verða afhent í Hörpu þann 26. mars næstkomandi. Þar hlaut Visit Húsavík tilnefningu í flokknum Ferðaþjónustuvefur ársins, ásamt Icelandair, Íslandsstofu, Carrental.is og Key to Iceland.
Visit Húsavík var ein af um 220 vefsíðum sem komu til greina í ár, og vakti tilnefningin mikla ánægju hjá þeim sem staðið hafa að uppbyggingu vefsins.
Húsavík.com ræddi við Helgu Björgu Sigurðardóttur og Heiðar Hrafn Halldórsson, sem ásamt Arnóri Ragnarssyni hjá Hugmiðjunni hafa unnið að gerð og þróun þessa nýja upplýsingavefs um Húsavík ásamt stjórn Markþings og starfsfólks Hugmiðjunnar.
Spennuþrungin stund
„Þetta er æðislegt. Við fylgdumst með tilnefningunum í beinni, ég, Heiðar og Arnór,“ segir Helga Björg. Heiðar segir spennuna hafa verið mikla þegar leið á útsendinguna. „Þegar búið var að birta fjórar tilnefningar hugsaði ég: Nei, þetta er sennilega ekki að fara að gerast. Þá var búið að nefna vef Icelandair og vef Íslandsstofu, Inspired by Iceland. En svo, eins og í Eurovision, komum við auðvitað síðust upp úr hattinum.“
Helga Björg tekur undir að augnablikið hafi verið spennuþrungið. „Já, þetta var eiginlega eins og að fylgjast með Eurovision eða Óskarnum og það var ótrúlega góð tilfinning að fá þessa viðurkenningu. Það var mikil hamingja í hópnum.“
„Helga Björg sagði að þetta yrði verðlaunavefur og hún stóð svo sannarlega við orð sín,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings. „Þetta er frábær viðurkenning fyrir það góða starf sem hefur verið unnið.“
Helga Björg segir nú vera rætt hvort hópurinn fari suður til að vera viðstaddur verðlaunaafhendinguna í næstu viku. „Það verður gaman að sjá hvernig þetta fer,“ segir Helga Björg.
Ritstjórn Húsavík.com óskar Markþingi, Hugsmiðjunni og öllum aðstandendum vefsins innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenningu á þeirra starfi.


