Sameiginlegt lið Blakdeildar Völsungs og Eflingar í Reykjadal var hársbreidd frá því að komast í úrslit Kjörísbikarsins í blaki karla þegar liðið tapaði 3:2 fyrir Aftureldingu í spennandi undanúrslitaleik sem fór fram í Digranesi síðdegis í dag.
Lið Völsungs og Eflingar leiddi fyrstu hrinuna frá upphafi til enda og vann hana 25:23. Afturelding svaraði í annarri hrinu, komst snemma í 5:1 og þótt Völsungur næði að jafna í 8:8 höfðu Mosfellingar betur að lokum, 25:18. Þeir fylgdu því svo eftir í þriðju hrinu, sem var jöfn framan af, en Afturelding skildi sig frá gestunum þegar á leið og vann 25:19. Völsungar sýndu hins vegar mikinn karakter í fjórðu hrinu. Eftir æsispennandi kafla tókst liðinu að knýja fram oddahrinu með 25:21 sigri og jafna leikinn í 2:2. Í oddahrinunni reyndist Afturelding þó sterkari á lokasprettinum og tryggði sér sigur, 15:10.
Húsavík.com óskar Völsungum til hamingju með frábæran árangur í vetur.

