Njáll Trausti: „Hef haft mikinn áhuga á fluginu alveg frá barnsaldri“

Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Norðausturkjördæmis hefur verið mikið í fréttum í vikunni eftir að beina þurfti 16 flugvélum frá Keflavíkurflugvelli til varaflugvalla innanlands. Njáll hefur vakið athygli í rúman áratug sem ötull baráttumaður fyrir bættum innviðum flugsamgangna á Íslandi, en hann og Friðrik Pálsson stofnuðu félagið Hjartað í Vatnsmýri …

Þoka komin heim eftir 17 daga

Mikil gleði ríkti á heimili Hörpu Hrannar Björnsdóttur í kvöld þegar týnda kisan Þoka skilaði sér loks heim, eftir heila 17 daga fjarveru. Húsavík.com fjallaði um leitina að Þoku á dögunum og vöktu fréttirnar og aðstoð unglingadeildar Björgunarsveitarinnar Garðars mikla athygli. Nú hefur sagan fengið farsælan endi. „Ég var …

Tveir sigrar Völsunga gegn Þrótti í GPG höllinni í dag og leikið aftur á morgun

Tveir leikir fóru fram í Unbrokendeildum karla og kvenna í blaki í GPG höllinni á Húsavík í dag þegar Völsungar tóku á móti liðum Þróttar í Fjarðabyggð. Karlaliðin mættust klukkan 14.00 í hörkuleik sem endaði með 3–2 sigri Völsungs eftir æsispennandi leik. Kvennaliðin stigu svo á völlinn í kjölfarið …

Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun. Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í …

Undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu rafeldsneytisframleiðslu

Norðurþing og E-Valor hafa undirritað viljayfirlýsingu um að kanna möguleika á uppbyggingu sjálfbærrar rafeldsneytisframleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Verkefnið er fyrirhugað í þremur áföngum og miðar að framleiðslu allt að 100.000 tonna af rafeldsneyti á ári þegar fullum afköstum verður náð. Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, segir verkefnið …

Krafa Gentle Giants á hafnasjóð Norðurþings nemur 91 milljón króna

Krafa Gentle Giants á hendur Hafnasjóði Norðurþings nemur rætt tæpri 91 milljón króna. Krafan var kynnt á fundi byggðarráðs Norðurþings í gær. „Stjórn Hafnasjóðs kemur saman í næstu viku til ræða viðbrögðin,“ segir Bergþór Bjarnason fjármálastjóri Norðurþings í samtali við Húsavík.com Um er að ræða fjárhæð sem byggir á …

Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni. …

„Hverfisráðin eru ekki tilgangslaus, en þau eru mjög bitlaus“

„Hverfisráðin eru ekki tilgangslaus, en þau eru mjög bitlaus. Þetta er bara eins og óskalisti og það tekur enginn eftir því þegar við fundum ekki,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, atvinnu- og samfélagsfulltrúi Norðurþings, um stöðu hverfisráða í sveitarfélaginu. Í Norðurþingi eiga að starfa fjögur hverfisráð: á Raufarhöfn, í Öxarfirði, …

Baldur Einarsson prentsmiður og portrettlistamaður látinn

Baldur Einarsson, prentsmiður, skopmyndateiknari og portrettlistamaður á Húsavík er látinn, 77 ára að aldri. Baldur fæddist á Húsavík þann 11. ágúst 1948, en hann lést þann 18. febrúar síðastliðinn. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Baldur starfaði lengi vel hjá prentsmiðjunni Örk við útgáfu Víkurblaðsins og Skarps, héraðsfréttablaðanna …