Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun. Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í …

Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni. …

Ágúst Sigurður Óskarsson í öðru sæti M-lista Samfélagsins

Ágúst Sigurður Óskarsson ráðgjafi og atvinnulífstengill hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði og sjúkraflutningamaður, mun skipa í 2. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi. Ágúst sagði í samtali við Húsavík.com að hann hafi fengið áskoranir sem hann taki með þökkum og muni stoltur taka sæti með þessum hópi. „M-Listi Samfélagsins er breiðfylking …

Rúnar Traustason nýr oddviti M-Lista Samfélagsins

Rúnar Traustason, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og stöðvarstjóri Póstsins á Húsavík, mun leiða M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Bakland flokksins fundaði á Húsavík í gær og í samtali við Húsavík.com segir Rúnar að næstu sæti listans verði kynnt á komandi dögum. Áki Hauksson, núverandi bæjarfulltrúi M-Listans, …

Lilja Dögg Alfreðsdóttir nýr formaður Framsóknarflokksins

Talsverður hópur Framsóknarfólks úr Norðurþingi er um helgina statt á flokksþingi Framsóknarflokksins í Reykjavík, en rétt í þessu voru tilkynnt úrslit úr formannskjöri. Lilja Dögg Alfreðsdóttir var kjörinn nýr formaður flokksins með 58% atkvæða en Ingibjörg Isaksen þingmaður úr Norðausturkjördæmi fékk 42% atkvæða. Lilja hóf sigurræðu sína á að …

Þingeyjarsveit: Fækkað um tvo í sveitarstjórn og fimm fulltrúar hætta

Við sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí verður breyting á skipan sveitarstjórnar í Þingeyjarsveit, en Innviðaráðuneytið hefur samþykkt erindi sveitarfélagsins um að fækka kjörnum fulltrúum úr níu í sjö á næsta kjörtímabili. Fjölgun fulltrúa úr sjö í níu var veitt sem tímabundin undanþága í kjölfar sameiningar Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar árið 2022. …