Vestfirskt fyrirtæki snýr halla ríkissjóðs í afgang með 40 milljarða greiðslu

Fyrirtækið Kerecis frá Ísafirði mun í haust greiða 40 milljarða króna eingreiðslu í ríkissjóð Íslands vegna skattlagningar á kaupum móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum dótturfyrirtækisins. Um er að ræða eina stærstu einstöku skattgreiðslu sem íslenskt fyrirtæki hefur innt af hendi. Frá þessu er greint í nýbirtum árshlutareikningi félagsins. Samkvæmt fjárlögum …

Verður eini sýslumaður landsins staðsettur á Húsavík?

Frumvarp Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta var samþykkt á Alþingi í gær og verður landið samkvæmt því allt undir einum sýslumanni frá og með næstu áramótum. Svavar Pálsson, sýslumaður Norðurlands eystra og settur sýslumaður á Austurlandi, segir að óvissan sé mikil meðan beðið er nánari útfærslu ráðuneytisins. …