Fjöldi fyrirtækja frá Húsavík á Mannamótum í Kópavogi

Fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki og einstaklingar frá Húsavík taka þátt í Mannamótum sem fara fram í Kórnum í Kópavogi nú í dag. Meðal þátttakenda frá Húsavík eru Friends of Moby Dick, Gentle Giants, GeoSea, Hvalasafnið og Norðursigling.

Mannamót eru árlegur viðburður Markaðsstofa landshlutanna, en þær eru sjö talsins: á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi, Höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Hlutverk Markaðsstofanna er meðal annars að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sinna útgáfumálum, móttöku blaðamanna, beinni markaðssetningu og vöruþróun í greininni. Samstarfið nær til yfir 1.000 fyrirtækja og 61 sveitarfélags víðs vegar um landið.

Heiðar Hrafn, hjá Markþingi, segir viðburðinn hafa gengið vel: „Við erum búin að hitta mikið af okkar viðskiptavinum hjá ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum í dag. Þetta er mjög mikilvægur viðburður ár hvert,“ segir Heiðar.