Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun.
Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í Kelduhverfi, og í fjórða sæti er Elísabet Anna Helgadóttir, geislafræðingur.
Eiður Pétursson, formanður Framsóknarfélags Þingeyinga, segir í samtali við Húsavík.com að til standi að kynna allan framboðslistann á aðalfundi félagsins þann 14. mars næstkomandi.

