„Væri enn ein atlagan að ferðaþjónustu á landsbyggðunum“ segir formaður hafnasjóðs
Boðaðar breytingar á virðisaukaskattsumhverfi skemmtiferðaskipa í hringsiglingum hafa vakið hörð viðbrögð víða um land. Frá og með næsta sumri vilja skattyfirvöld leggja virðisaukaskatt á alla þjónustu og hafnargjöld sem tengjast skemmtiferðaskipum í hringsiglingum við Ísland. „Þetta væri enn ein atlagan að ferðaþjónustu á landsbyggðunum,“ segir Eiður Pétursson, formaður hafnarnefndar …
