Krambúðin verður SPAR

Krambúðin á Húsavík mun brátt fá nýtt nafn, en Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hér á landi. Samkvæmt samningnum er stefnt að því að fyrir lok árs 2027 muni allar verslanir sem nú starfa undir merkjum Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og …

Ragnheiður nýr forseti Landssambands ungmennafélaga

Ragnheiður Geirsdóttir var kjörin nýr forseti Landssambands ungmennafélaga á sambandsþingi um síðastliðna helgi. Landssamband ungmennafélaga eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks um allt Ísland og eru aðildarfélög 44 talsins, þar á meðal stúdentaráð HÍ, Samband íslenskra framhaldsskólanema, SAMFÉS, JCI á Íslandi og ungliðahreyfingar ýmissa stjórnmálaflokka. Í tilkynningu frá samtökunum …

„Gatanöf er ein af vannýttum perlum í ferðaþjónustu á svæðinu“

Skiltamerkingar að Yltjörn, Gullfiskatjörninni sunnan Húsavíkur, er ekki eina styrkverkefnið sem Norðurþing hefur fengið úthlutað frá Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða á síðustu árum. Árið 2024 fékk sveitarfélagið úthlutað 7 milljónum króna til uppbyggingar á nýju bílastæði og gönguleið um Bakkahöfða. Styrkurinn var einnig nýttur til að auka upplýsingagjöf á svæðinu og …

Bætt aðgengi og nýjar skiltamerkingar við Gullfiskatjörn

Nýjar skiltamerkingar hafa verið settar upp við gatnamót Þverholts og Garðarsbrautar auk nýrra skilta við Yltjörn sunnan við Húsavík, sem í daglegu tali er kölluð Gullfiskatjörnin. Þessar framkvæmdir ásamt fleiri jarðvegsframkvæmdum við tjörnina er hluti af styrkverkefni sem sveitarfélagið fékk úthlutað úr Framkvæmdasjóði Ferðamannastaða árið 2023. Styrkurinn hljóðaði upp …