Aðeins tíu dagar eru nú í að Útvarp Húsavík.com hefji útsendingar hér á vefnum. Útvarpsstöðin er hluti af fréttavefnum Húsavík.com og mun bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem viðtöl og spjallþættir fara saman við tónlist.
Markmiðið er að skapa vettvang fyrir umræðu, menningu og tónlist í samfélaginu og á norðausturhorninu. Við leitum nú að áhugasömum einstaklingum sem vilja vera með þætti á stöðinni og má hafa samband með því að senda tölvupóst á frettir@husavik.com
Þar til stöðin fer af stað föstudaginn 20. febrúar er hægt að hlusta á prufuútsendingu Útvarps Húsavík.com hér á vefnum: www.husavik.com/utvarp/

