Útvarp Húsavík fer í loftið eftir tíu daga
Aðeins tíu dagar eru nú í að Útvarp Húsavík.com hefji útsendingar hér á vefnum. Útvarpsstöðin er hluti af fréttavefnum Húsavík.com og mun bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem viðtöl og spjallþættir verða í forgrunni. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir umræðu og menningu í samfélaginu og á norðausturhorninu. …
