Framkvæmdir við lyftingaraðstöðu í Íþróttahúsinu á Kópaskeri

Framkvæmdir eru hafnar við lyftingaraðstöðu í Íþróttahúsinu á Kópaskeri. Í vikunni verður unnið að uppsetningu aðgangstýringarhurðar inn í lyftingarsalinn. Á laugardaginn 14. mars munu sjálfboðaliðar síðan taka til hendinni, fjarlægja tæki og búnað, fara í yfirhalningu á rýminu og leggja nýtt gólfefni að hluta, auk þess sem nýjum tækjum verður komið fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu Norðurþingi.

Á meðan framkvæmdum stendur verður ræktin lokuð og er gert ráð fyrir að verkinu ljúki á um það bil einni viku. Í tilkynningunni er jafnframt hvatt til þess að þeir sem hafi tök á að leggja verkefninu lið gefi kost á sér, en „margar hendur vinna létt verk“.

Ljósmynd: Ottó Gunnarsson