Framkvæmdir við lyftingaraðstöðu í Íþróttahúsinu á Kópaskeri

Framkvæmdir eru hafnar við lyftingaraðstöðu í Íþróttahúsinu á Kópaskeri. Í vikunni verður unnið að uppsetningu aðgangstýringarhurðar inn í lyftingarsalinn. Á laugardaginn 14. mars munu sjálfboðaliðar síðan taka til hendinni, fjarlægja tæki og búnað, fara í yfirhalningu á rýminu og leggja nýtt gólfefni að hluta, auk þess sem nýjum tækjum …

Fyrsti fundur sveitarstjórnar Norðurþings á árinu haldinn á Kópaskeri

Fyrsti fundur sveitarstjórnar Norðurþings á árinu 2026 fer fram á Kópaskeri í dag, en á dögunum var þess minnst, meðal annars hér á Húasvík.com, að 50 ár væru liðin frá Kópaskersskjálftanum. „Ég vildi að við héldum þennan fyrsta fund ársins í sveitarstjórn Norðurþings á Kópaskeri af þessu tilefni,“ segir …

50 ár frá Kópaskersskjálftanum: „Fannst þetta aldrei ætla að enda“

Þann 13. janúar 1976 klukkan 13:30 reið einn harðasti jarðskjálfti sem orðið hefur í byggð á Norðurlandi yfir Kópasker. Skjálftinn mældist 6,5 á richterkvarða og átti upptök sín um 12 kílómetra suðvestur af þorpinu. Á örfáum sekúndum breyttist daglegt líf íbúanna. Þótt manntjón yrði ekki í skjálftanum, urðu afleiðingarnar …