„Kom mér stórkostlega á óvart og ég er enn að jafna mig“

Blaðamaður Húsavík.com leit við á skrifstofum stéttarfélaganna og hitti þar fyrir Aðalstein J. Halldórsson, oddvita Tjörneshrepps og fyrsta mann á T-listanum í síðustu tveimur sveitarstjórnarkosningum í Tjörneshreppi. Listinn var í bæði skiptin einn í kjöri, eins og raunar oft áður í hreppnum. Oddvitinn segist ekki reikna með mótframboði í …

Aldey leiðir nýtt vinstri framboð Velferðar

Fulltrúar V-listans, hins nýja vinstri framboðs Velferðar, funduðu á Húsavík í gærkvöld þar sem gengið var frá uppstillingu í efstu sæti framboðslistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor. Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi frá árinu 2021, leiðir listann. Í samtali við Húsavík.com í gær sagði Aldey …

Helmingur erlendra íbúa telur rödd sína ekki heyrast í nærsamfélaginu

„Mér finnst áhugavert að þegar þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að skoðanir þeirra væru teknar til greina í ákvörðunum sem varða nærsamfélagið sagði helmingur þátttakenda svo ekki vera,“ segir Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir hjá Þekkingarneti Þingeyinga í samtali við Húsavík.com um niðurstöður nýrrar rannsóknar á stöðu og reynslu erlendra …

„Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi“

Pólitískur bakgrunnur frambjóðenda Óskalistans er nokkuð fjölbreyttur og eru nokkrir reynsluboltar í þeirra röðum, en þriðjungur frambjóðenda hefur áður boðið sig fram í sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi, frá því sveitarfélagið var stofnað árið 2006. „Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi og það mun skipta …

Öll framboð ættu að liggja fyrir í vikunni

Samfylkingin hefur boðað til félagsfundar á laugardag þar sem tillaga stjórnar um uppröðun á lista Samfylkingarinnar í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi verður borin upp til samþykktar. Framboðsmálin í sveitarfélaginu eru óðum að skýrast. Sjálfstæðisflokkurinn og Óskalistinn hafa þegar kynnt framboðslista sína í heild. Þá hefur M-listi Samfélagsins …

Óskalistinn með fullmannað lið til leiks í Norðurþingi

Ó-listinn hefur nú fullmannað framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor. Í fyrsta sæti listans er Ómar Gunnarsson málari á Kópaskeri, sem farið hefur fyrir undirbúningi framboðsins. Í öðru sæti er Gísli Þór Briem starfsmaður HSN og sjálfstætt starfandi atvinnurekandi á Raufarhöfn, og í þriðja sæti Einar Sigurðsson …

Framsókn gagnrýnir tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB

Framsóknarflokkurinn gagnrýnir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu 29. ágúst næstkomandi. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins, segir ríkisstjórnina vera að forgangsraða rangt og hlaupa frá þeim verkefnum sem hún hafi verið kosin til að sinna. Að hennar mati ætti fókus stjórnvalda …

Brynjar Baldursson í 4. sæti M-Lista Samfélagsins

Brynjar Baldursson, framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. og sjúkraflutningamaður, skipar 4. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framboðinu í dag. Í tilkynningunni segir að Brynjar, sem oft er kallaður „Binni í Heimamönnum“, hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hafi á …