Helena Eydís Ingólfsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi

Helena Eydís Ingólfsdóttir mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þetta var ákveðið rétt í þessu á félagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Norðurþingi sem nú stendur yfir í sal Framsýnar á Húsavík. Helena hefur tvisvar áður verið í framvarðasveit flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Hún skipaði 2. sæti listans árið …

Stjórn hafnasjóðs segir ákvarðanir hafa verið teknar af meiri heift en skynsemi

Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings fundaði í morgun vegna kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur um 90,8 milljónum króna. Krafan byggir á dómi Landsréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði …

Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi

Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri hjá HSN, er nýr oddviti Framsóknar og félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningar í maí. Tilkynnt var um fjögur efstu sæti á listans á fundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun. Í öðru sæti er Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. Þriðja sætið skipar Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi á Hóli í …

Framboðsmálin: „Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð“

„Þegar Samfylkingin er orðin sexý þá kemur flokkseigendafélagið á fleygiferð og ætlar að henda oddvitanum,“ segir einn heimildarmaður Húsavík.com sem telur illa vegið að oddvita flokksins, Benóný Val Jakobssyni. Húsavík.com hefur rætt við mikinn fjölda fólks í baklöndum framboðanna í Norðurþingi síðasta sólarhringinn um stöðu uppstillinga, menn og málefni. …

Ágúst Sigurður Óskarsson í öðru sæti M-lista Samfélagsins

Ágúst Sigurður Óskarsson ráðgjafi og atvinnulífstengill hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði og sjúkraflutningamaður, mun skipa í 2. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi. Ágúst sagði í samtali við Húsavík.com að hann hafi fengið áskoranir sem hann taki með þökkum og muni stoltur taka sæti með þessum hópi. „M-Listi Samfélagsins er breiðfylking …