Fyrsti fundur sveitarstjórnar Norðurþings á árinu haldinn á Kópaskeri

Fyrsti fundur sveitarstjórnar Norðurþings á árinu 2026 fer fram á Kópaskeri í dag, en á dögunum var þess minnst, meðal annars hér á Húasvík.com, að 50 ár væru liðin frá Kópaskersskjálftanum.

„Ég vildi að við héldum þennan fyrsta fund ársins í sveitarstjórn Norðurþings á Kópaskeri af þessu tilefni,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar. Að hans sögn verður atburðarins minnst sérstaklega í upphafi fundarins.

Um er að ræða 160. fund sveitarstjórnar Norðurþings og fer hann fram í Skólahúsinu á Kópaskeri og hefst klukkan 13:00.

Sjá frétt: 50 ár frá Kópaskersskjálftanum: „Fannst þetta aldrei ætla að enda“

Dagskrá fundar sveitarstjórnar Norðurþings á Kópaskeri í dag:

Almenn mál:
1. 50 ár frá Kópaskersskjálftanum – 202501126
2. Ósk um endurskoðun á virkjanakosti – 202601046
3. Gjaldskrár Norðurþings 2026 – 202510050
4. Reglur um afslátt af fasteignaskatti 2026 – 202512011
5. Endurskoðun húsnæðisáætlana 2026 – 202510016
6. Störf undanskilin verkfallsheimild hjá Norðurþingi – 202201064
7. Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 20252026 – Húsavík – Kópasker – Raufarhöfn – Norðurþing – 202512099
8. Jöfnun atkvæðavægis – breyting á kosningalögum nr.112 2021 – 202601022
9. Samkomulag um fornminjaskráningu í Norðurþingi – 202512013
10. Ósk um lóðarsamning að Aðalbraut 24A, Raufarhöfn – 202512067
11. Ósk um endurskoðun lóðarsamnings við Aðalbraut 24, Raufarhöfn – 202512047

Fundargerðir:
12. Fjölskylduráð – 232 – 2512002F
13. Fjölskylduráð – 233 – 2512005F
14. Skipulags- og framkvæmdaráð – 230 – 2512004F
15. Skipulags- og framkvæmdaráð – 231 – 2512006F
16. Byggðarráð Norðurþings – 512 – 2512003F
17. Byggðarráð Norðurþings – 513 – 2512007F
18. Orkuveita Húsavíkur ohf – 272 – 2601001F