Húsvíkingurinn Magnús Eiður Magnússon og spilafélagi hans Sigurbjörn Haraldsson eru nýkrýndir íslandsmeistarar í tvímenningi hjá Bridgesambandi Íslands árið 2026. Mótið fór fram í Breiðfirðingabúð í Reykjavík um helgina.
Magnús er sonur hjónanna Magnúsar Péturs Magnússonar og Hólmfríðar Benediktsdóttur, Hófíar Ben. Í öðru sæti á mótinu voru þeir Hrannar Erlingsson og Gunnar Björn Helgason, en bronsið tóku Matthías Gísli Þorvaldsson og Bjarni Hólmar Einarsson. Hægt er að skoða úrslit mótsins á vef Bridgesambands Ísland.

