Brynjar Baldursson, framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. og sjúkraflutningamaður, skipar 4. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í maí. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framboðinu í dag.
Í tilkynningunni segir að Brynjar, sem oft er kallaður „Binni í Heimamönnum“, hafi víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hafi á undanförnum árum komið að fjölbreyttum verkefnum í rekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Hann var meðal þeirra sem komu að því að stofna og byggja upp byggingavöruverslun á Húsavík eftir að fyrri verslun hætti starfsemi. Þá hefur hann einnig rekið eigið verktaka- og þjónustufyrirtæki um árabil.
Samkvæmt tilkynningunni vill Brynjar vinna að því að laða fleiri fyrirtæki og þjónustu til Norðurþings með hagrænum hvötum. Hann telur mikilvægt að sveitarfélagið verði áfram aðlaðandi fyrir ungt fólk og fjölskyldur sem vilja setjast að á svæðinu og að til þess þurfi fjölbreytta þjónustu og öflugt atvinnulíf. Brynjar leggur jafnframt áherslu á skilvirkan rekstur sveitarfélagsins og sér tækifæri til hagræðingar, meðal annars með auknu samstarfi og samruna rekstrarþátta og markvissara viðhaldi fasteigna í eigu sveitarfélagsins.
Brynjar er giftur Svövu Steingrímsdóttur, sjúkraliða á HSN, og eiga þau þrjú börn.

